Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn þriðjudaginn 18. maí 2021 kl.18.00 á Hótel Ísafirði.

Vegna samkomutakmarkana eru félagsmenn beðnir að tilkynna þátttöku á postur@verkvest.is. Einnig verður hægt að taka þátt um fjarfundabúnað.

Boðið verður upp á málsverð í upphafi fundar.

Dagskrá:

Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 24.gr laga félagsins 

Önnur mál

Allir félagsmenn eiga jafnan atkvæðis- málfrelsis- og tillögurétt á aðalfundi og eru hvattir til að mæta og nýta sér þann rétt.

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga

Landssambönd

Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að eftirtöldum landssamböndum innan ASÍ.