sunnudagurinn 14. október 2018

Verkalýðskempan Pétur Sigurðsson fallin frá

Fyrsti formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga Pétur Sigurðsson andaðist sunnudaginn 14. október, á áttugasta og sjöunda aldursári, en Pétur var fæddur 18. desember 1931. Pétur var af alþýðufólki kominn og hefur hann helgað íslenskri alþýðu starfskrafta sína óslitið megnið af starfsæfinni. Pétur stóð í fylkingarbrjósti fyrir vestfirskt Verkafólk í hartnær hálfa öld, sem forseti Alþýðusambands Vestfjarða frá 1970 - 2016, sem formaður Verkalýðsfélagsins Baldurs á Ísafirði frá árinu 1974 - 2002 og síðar í sameinuðu Verkalýðsfélagi Vestfirðinga frá 2002 - 2007. Við samingaborðið var hann óþrjótandi viskubrunnur um kjara- og réttindamál verkafólks og var ávalt fremstur í brjóstvörn fyrir þá sem minna máttu sín. Pétur var þekktur fyrir óbilandi baráttuþrek fyrir bættum kjörum verkafólks og setti Pétur sannarlega mark sitt á samningmál verkfólks. Verkalýðskempan Pétur var ekki tilbúinn að skrifa undir samninga sem innihéldu "ekki neitt". Eitt af síðustu embættisverkum Péturs var að ljúka við sameiningu Alþýðusamband Vestfjarða inn í Verkalýðsfélag Vestfirðinga sem varð að veruleika í desember 2016. Hinn aldni höfðingi sem nú hefur kvatt sjónarsviðið var heiðursfulltrúi í trúnaðarráði Verkalýðsfélags Vestfirðinga til ársins 2017. Stjórn og trúnaðarráð Verkalýðsfélags Vestfirðinga sendir Hjördísi Hjartardóttur, eftirlifandi konu Péturs, börnum og fjölskyldum þeirra innilegustu samúðarkveðjur.

Landssambönd

Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að eftirtöldum landssamböndum innan ASÍ.