Við þær aðstæður sem nú hafa skapast í atvinnulífi landsmanna er nauðsynlegt að halda rekstri fyrirtækja gangandi. Þó er ekki ólíklegt að einstaka fyrirtæki fari í gjaldþrot eða einhver skipti um eigendur. Þessi staða á vinnumarkaði gæti valdið starfsfólki áhyggjum um eigið atvinnuöryggi og framtíð heimila þeirra. Stéttarfélögin munu leitast við að veita félagsmönnum sínum alla þá aðstoð og ráðgjöf sem unnt er, en félögin hafa gott og vel þjálfað starfsfólki í sinni þjónustu.
Samtök launafólks og hið opinbera reyna nú af öllum mætti að takmarka áhrif fjármálakreppunnar á hag almennings. Hér koma nokkrir gagnlegir tenglar sem gætu leiðbeint launafólki við að finna upplýsingar í þeim efnahagsþrengingum sem nú ganga yfir á Íslandi.
Slæður (powerpoint)
Hlutastörf - Hlutabætur - Nýtt
Lífeyrissjóðirnir:
Lífeyrissjóðsiðgjöld og staða lífeyrissjóðanna
Press release, October 7th, 2008
Pytania i odpowiedzi
ASÍ og Félagsmálaráðuneyti
ASÍ og Félagsmálaráðuneyti hafa samráð
ASÍ - Information for Foreigners - useful websites
ASÍ - Informacje dla obcokrajowców - przydatne strony internetowe (POLSKI)
Spurt og Svarað - réttindamál
Spurt og Svarað í efnahagsþrengingum - fjármál heimilanna
Velferðarvaktin - Nýtt
Ísland.is - Nýtt
The Icelandic Government Information Center
http://www.iceland.org/info - Nýtt
Inneignir almennings
Hvaða inneignir almennings eru tryggðar?
Tryggingasjóður
Réttarstaða launafólks
Rekstrarefiðleikar og réttarstaða launafólks
Hlutabætur dæmi um útreikning
Information for Foreigners - useful websites
Information on island.org
Ýmis ráðgjöf
Spara.is
Ráðgjafastofa um fjármál heimilanna
Greiðsluerfiðleikar
ASÍ: Greiðsluerfiðleikar lántakenda hjá Íbúðarlánasjóði
Greiðslujöfnun - áríðandi upplýsingar - Nýtt
Greiðslujöfnun - Nýtt
Félagsmálaráðuneyti - upplýsingar
Minestry of Social Affairs - information
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Orlofshúsin í Svignaskarði og Ölfusborgum hafa þegar verið leigð.
Listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs vegna stjórnarkjörs í Verk-Vest er auglýstur í dag, 12. febrúar 2009. Frestur til að bjóða fram annan lista eða eða gera tillögur um breytingar í einstök stjórnarsæti er 14 dagar frá deginum í dag og rennur út um hádegi 26. febrúar n.k. Hverri tillögu skulu fylgja meðmæli 25 fullgildra félagsmanna og skriflegt samþykki þeirra sem boðnir eru fram.
Nánari upplýsingar eru í lögum félagsins, hér.
Listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs er hér.
Fyrirhugað er að halda framhaldsnámskeið fyrir trúnaðarmenn hjá Verk Vest dagana 27. - 31. október nk. 3ja daga námskeið fyrri hluti og 2ja daga námskeið seinni hluti, dagana 3. - 7. nóvember. Námskeiðið er framhald af þeim námskeiðum sem félagið stóð fyrir sl. vor í samstarfi við Fos-Vest. Á áætlun er að uppbygging þeirra verði með áþekku sniði og námskeiðanna í vor þ.e. kennt verði 3 daga fyrri vikuna og 2 daga seinni vikuna.
Námskeiðið er einnig ætlað trúnaðarmönnum sem hafa starfað einhvern tíma og hafa grunnnámskeið trúnaðarmanna að baki. Trúnaðarmenn félagsins eru beðnir að skrá sig sem fyrst svo hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir í samstarfi við vinnuveitendur. Skráningu er hægt að framkvæma á netfangið finnbogi@verkvest.is og eins á skrifstofu félagsins í símum 4563190 eða 4565190.
Fundur stjórnar og trúnaðarmannaráðs Verk Vest verður haldinn miðvikudaginn 17. september nk. kl 20:00 í húsi félagsins Pólgötu 2 á Ísafirði.
Dagskrá.
Gestur fundarins er Gylfi Arnbjörnsson sem mun fara yfir stöðu efnahagsmála, endurskoðunarákvæði kjarasamninga ásamt þeirri vinnu sem er í gangi vegna endurhæfingarsjóðs.
Vikurnar 11. - 18. júlí á Akureyri og 25. júlí - 1. ágúst sem tilkynnt var um hér á vefnum þ. 9. júlí eru báðar leigðar.
Upplýsingar um laus orlofshús eru undir Orlofshús og íbúðir til vinstri.