Orlofssjóður Verk-Vest

Verkalýðsfélag Vestfirðinga býður félagsmönnum fjölbreytta valkosti í orlofsdvalarstöðum víðs vegar um land og íbúð á Spáni.

Frekari upplýsingar um húsin og íbúðirnar, s.s. stærð, búnað, umhverfi, leiguskilmála o.fl. fást með því að fara inn Orlofsvef félagsins.

Meginatriði sem hafa þarf í huga:

  • Leigutímabil íbúða og sumarhúsa skiptast í 3 tímabil:
  • Janúar til 15. maí (opnast fyrir pantanir 1. nóv) - 15. maí til 15. september (opnast 1. mars) - 15. sept til áramóta (opnast 1. júlí). Sérstakar reglur eiga þó við um sumarúthlutun.
  • Félagsmenn geta pantað íbúð/sumarhús á vef félagsins í gegnum orlofshúsabókanir.
  • Lykla af íbúðum þarf að sækja á skrifstofur VerkVest og skila aftur þangað að dvöl lokinni.
  • Lyklar af sumarhúsum eru almennt í lyklaboxi og númer þess gefið upp á samningi. Í einhverjum tilfellum er lykill hjá umsjónarmanni á staðnum og þarf að vitja hans á tilsettum tíma. Ef leigutaki tefst er bráðnauðsynlegt að láta umsjónarmann vita.
  • Það er með öllu óheimilt er að framselja leigusamninga. Leigutaki ber ábyrgð á húsinu/íbúðinni og öllu sem því fylgir. Félagsmaður sem verður uppvís af framsali á leigusamning verður meinaður aðgangur að íbúðum og húsum félagsins.
  • Allt húsdýrahald er bannað í orlofsbústöðum Verk-Vest að viðlögðum tafarlausum brottrekstri.
  • Leigutaka ber að ganga vel um, þrífa eftir sig og skila húsinu/íbúðinni og öllum búnaði hreinum og tilbúnu fyrir næsta leigjanda. Verði vanhöld á þessu er þrifið á kostnað leigutaka.

Félagið greiðir einnig götu félagsmanna í sumarleyfinu með afsláttarkjörum á hótelum og gististöðum ásamt afsláttarkotum svo sem Útilegukorti og Veiðikorti. Einnig er hægt að kaupa flugmiða hjá flugfélaginu Ernir. Nánari upplýsingar um kaup á gistimiðum og öðrum afslætti er að finna á orlofsvefnum.

Sjá flipann Orlofshús Bókanir og fara svo í miðar og kort

Orlofsbústaðir

Orlofsíbúðir

Landssambönd

Verkalýðsfélag Vestfirðinga er aðili að eftirtöldum landssamböndum innan ASÍ.