Normal
0
21
false
false
false
IS
X-NONE
X-NONE
MicrosoftInternetExplorer4
/* Style Definitions */
table.MsoNormalTable
{mso-style-name:”Table Normal”;
mso-tstyle-rowband-size:0;
mso-tstyle-colband-size:0;
mso-style-noshow:yes;
mso-style-priority:99;
mso-style-qformat:yes;
mso-style-parent:””;
mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;
mso-para-margin-top:0cm;
mso-para-margin-right:0cm;
mso-para-margin-bottom:10.0pt;
mso-para-margin-left:0cm;
line-height:115%;
mso-pagination:widow-orphan;
font-size:11.0pt;
font-family:”Calibri”,”sans-serif”;
mso-ascii-font-family:Calibri;
mso-ascii-theme-font:minor-latin;
mso-fareast-font-family:”Times New Roman”;
mso-fareast-theme-font:minor-fareast;
mso-hansi-font-family:Calibri;
mso-hansi-theme-font:minor-latin;
mso-bidi-font-family:”Times New Roman”;
mso-bidi-theme-font:minor-bidi;}
Góð þátttaka var í kröfugöngu og hátíðarsamkomu sem
stéttarfélögin stóðu fyrir á Ísafirði og Suðureyri á baráttudegi launþega 1.
maí. Að venju hófust hátíðarhöldin á Ísafirði með kröfugöngu þar sem gengið var
með Lúðrasveit Ísafjarðar í broddi fylkingar frá húsi Verk Vest að Edinborg þar
sem hátíðardagskráin fór fram. Þar var boðið upp á fjölbreytta dagskrá sem
saman stóð af tónlist, leiklist og ræðum. Má þess geta að af þessu tilefni var
frumflutt leikrit Elfars Loga Hannessonar “Í vinnufötum og slitnum skóm –
verkalýðssaga Vestfirðinga.” En
leikþátturinn byggist á bók Sigurðar Péturssonar sagnfræðings ” Vindur í
seglum” og fjallar um upphafsár verkalýðsbaráttu okkar Vestfirðinga. Lúðrasveitin
lék nokkur lög fyrir gesti ásamt því sem BMW gengið steig á stokk og spilaði nokkur
lög. Þá fluttu nemendur Menntaskólans á Ísafirði nokkur lög úr söngleiknum
Grease sem sýndur var fyrir fullu húsi fyrr í vetur.
Aðalræðumaður dagsins
var Björn Snæbjörnsson formaður Einingar Iðju og Starfsgreinasambands Íslands.
Í ræðu sinni gerði Björn að umtalsefni þau réttindi sem áunnist hefði í gegnum
tíðina og margir tækju sem sjálfsagðan hlut í dag. Fyrir þessum réttindum hefði
verkafólk barist með samstöðuna að vopni og náð fram sigrum. Í því samhengi
vísaði Björn einnig til samstöðu okkar landsbyggðarfólks þegar kæmi að málum
sem að okkur snéri svo sem samgöngumálum. Þar mættum við ekki lát reka fleig í
raðir okkar heldur yrðum við að standa saman að þeim verkefnum sem skipti okkur
mestu máli. Þá voru atvinnumálin í brennidepli ásamt þeirri ólgu sem hefði
verið innan verkalýðshreifingarinnar síðustu misseri. Ræðu Björns í heild sinni
má nálgast hér.
Herdís Hubner grunnskólakennar á Ísafirði flutti hátíðargestum pistilinn þar
sem hún benti einnig líkt og Björn á þá nauðsyn að við landsbyggðarfólk yrðum
að snúa bökum saman. Grasið væri ekki alltaf grænna hinu megin við lækinn. Þá
gerði Herdís að umtalsefni þá staðreynd að okkur Vestfirðingum væri að fækka
ískyggilega hratt, og nefndi sem dæmi að á síðustu fjórum árum hefði börnum við
Grunnskóla Ísafjarðar fækkað um 100. Vegna þess yrði í fyrsta skipti í langann
tíma að segja upp kennurum við skólann. Pistil Herdísar í heild sinni má
nálgast hér.
Að loknum hátíðarhöldum var boðið upp á kaffi og
kökuhlaðborð í Guðmundarbúð, þar sem slysavarnarkonur sáu um kaffiveitingarnar
að vanda.1. maí hátíðarhöldin á Suðureyri tókust mjög vel eins og jafnan áður. Hátíðarhöldin voru með hefðbundnum hætti og góð þátttaka var í kröfugöngu og boðsundi barna, kaffiveitingar voru í félagsheimilinu þar sem um 130 manns komu í kaffi og hlýddu á ræðu dagsins sem Valdimar Hreiðarsson flutti og var að henni gerður góður rómur. Ræða Valdimars er hér.Einnig var boðið upp á söng og tónlistaratriði barna og endað var á leikverki úr vestfirskri verkalýðssögu sem Elfar Logi flutti við góðar undirtektir.Að venju stýrði Lilja Rafney Magnúsdóttir hátíðahöldunum. Hún lætur ekki deigan síga 1. maí þrátt fyrir annasöm störf á Alþingi.