Aukið atvinnuleysi – tökum á svartri atvinnustarfsemi !

Á stjórnarfundi Verkalýðsfélags Vestfirðinga sem var haldinn í húsi félagsins á Suðureyri í gærkvöldi var staða atvinnumála mjög til umræðu. Áhyggjur fundarmanna beindust helst að því hversu mjög atvinnuleysi í fjórðungnum hefur aukist. Einnig þá staðreynd að þrátt fyrir að íbúmum fjórðungsins hafi fækkað nokkuð á síðasta ári þá hefur atvinnuleysi aukist meira en gert var ráð fyrir. Þetta hlýtur að vekja okkur til umhugsunar um að þrátt fyrir að hluti af atvinnulausum flytist á brott þá erum við samt að sjá umtalsverða aukningu á atvinnuleysi. Þessi staðreynd segir okkur að störfum í fjórðungnum hefur fækkað mun meira en nemur brottfluttum.