Vörukarfa ASÍ bæði hækkar og lækkar – allt eftir því hvar er verslað

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað hjá átta verslunum og verslunarkeðjum frá því í nóvember 2013 (viku 44) þar til nú í byrjun febrúar (vika 6). Verð á vörukörfu ASÍ hækkaði mest um 3,2% hjá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar, hún hækkaði um 2,1% hjá Hagkaupum, 1,7% hjá Víði, 1,4% hjá Nettó, en hjá Krónunni, Samkaupum–Úrvali, Kaupfélagi Skagfirðinga og Kaupfélagi […]