Aðalfundur Verk Vest hvetur til samstarfs ASÍ félaga

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga hvetur til samstarfs aðildarfélaga ASÍ í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Þetta eru skilaboð fundarmanna inn í komandi kjaraviðræður. Telur fundurinn að eini raunhæfi möguleikinn til árangurs í baráttu fyrir bættum kjörum væri að sýna samstöðu bæði í orði og verki. Beita þyrfti verkalýðshreifingunni af fullum þunga, annað virðast atvinnurekendur ekki skilja. Atvinnurekendum […]