Samningnefnd SGS lýsir þungum áhyggjum af stöðu starfsfólks í ferðaþjónustu

Fram kom í máli margra formanna sem sátu samninganefndarfund hjá Starfsgreinasambandinu á fimmtudaginn var, að ástandið í kjaramálum fólks sem starfar innan ferðaþjónustunnar hefur aldrei verið jafn slæmt. Í sumar hafa komið óvenju mörg mál inn á borð stéttarfélaganna sem fjalla um að ekki eru greidd laun samkvæmt kjarasamningum. Einn fundarmanna gekk svo langt að segja: „Það er varla að það komin inn launamanneskja með rétt laun í veitingabransanum.“ Fundarmenn voru sammála um að ekki væri endilega um að ræða svik og pretti heldur væru atvinnurekendur oft illa upplýstir um kjarasamninga og leita sér ekki réttra upplýsinga.