Lægstu laun verði þrjúhundruð þúsund innan þriggja ára

Kröfugerð Starfsgreinasambands Íslands (SGS) var lögð fram á fundi samningaráðs SGS og fulltrúa Samtaka atvinnulífsins sem var haldinn í húsakynnum ríkissáttasemjara klukkan þrjú í dag. Kröfurnar mótuðust á fundum í verkalýðsfélögum og á vinnustöðum um land allt og með hliðsjón af niðurstöðu viðhorfskannana. Þær urðu þannig til í víðtæku, lýðræðislegu ferli í verkalýðshreyfingunni þar sem […]