Verðbólgan 0,8% – lækkun á sykurskatti skilar sér ekki

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,67% í febrúar og er ársverðbólga óbreytt frá fyrra mánuði 0,8% að því er fram kemur í nýjum tölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun. Húsnæðisverð er enn leiðandi í hækkun verðlags en vísitala neysluverðs hefur lækkað um 0,9% undanfarið ár sé húsnæðisliðurinn undanskilinn. Breytingar á verðlagi í mánuðinum má að […]