Formannafundur LÍV ósáttur við seinagang í kjaraviðræðum

Formannafundur LÍV, Landssambands ísl. verzlunarmanna, var haldinn í húsakynnum VR þann 22. apríl. Tilefni fundarins var staðan í kjaraviðræðum. Landssambandið lagði fram kröfugerð þann 13. febrúar sl. og hefur verið fundað með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins nokkrum sinnum síðan. Ljóst er að þeir fundir sem haldnir hafa verið hafa ekki skilað þeim árangri sem vænst var […]