Verslunar- og skrifstofufólk slítur viðræðum og hefur undirbúning aðgerða

Samningafundur fulltrúa VR og Landssambands ísl. verzlunarmanna annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar hjá ríkissáttasemjara í gær, mánudaginn 27. apríl, var árangurslaus. Farið var yfir stöðuna á fundi stjórnar og trúnaðarráðs VR í gærkvöldi og næstu skref rædd. Undirbúningur verkfallsaðgerða er hafinn. Deilu VR / LÍV og SA var vísað til ríkissáttasemjara þann 17. […]
Verkfall félagsmanna Verk Vest hefst fimmtudaginn 30. apríl

Verkfall félagsmanna Verk Vest hefst fimmtudaginn 30. apríl og stendur fyrst um sinn yfir í hálfan sólarhring, frá hádegi til miðnættis. Eftir það taka við regluleg sólarhringsverkföll þar til ótímabundið verkfall hefst 26. maí. Ljóst er að verkföllin munu hafa mikil áhrif á fjölda vinnustaða á öllu félagssvæðinu. Tímasetningar verkfallsaðgerðanna: 30. apríl 2015 Allsherjar vinnustöðvun […]