Verkföllum ekki frestað hjá SGS félögum

Af gefnu tilefni skal það tekið fram að Starfsgreinasamband Íslands hefur ekki átt í viðræðum við Samtök atvinnulífsins síðustu daga og er ekki hluti af því ferli sem verður til þess að Flóabandalagið, VR, LÍF og StéttVest ákveða að fresta verkfalli. Starfsgreinasambandið hefur því ekki tekið neina ákvörðun um að fresta verkfalli sem fyrirhugað er […]