Helstu atriði úr nýjum kjarasamningi verslunar- og skrifstofufólks

Skrifað hefur verið undir nýjan kjarasamning LÍV og Samtaka atvinnulífsins sem gildir til loka árs 2018. Lægstu launataxtar hækka um 31,1% eða kr. 64.208 á samningstímanum. Lágmarkstekjur verða 300 þúsund krónur á mánuði frá maí árið 2018. Forsendur fyrir samningnum eru m.a. að hann verði stefnumarkandi fyrir aðra kjarasamningagerð á vinnumarkaði og að kaupmáttur aukist. […]

Skrifað undir nýja kjarasamninga – aðgerðum frestað

Meginkröfur í höfn Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands hefur undirritað nýjan kjarasamning vegna starfa á hinum almenna vinnumarkaði. Í upphafi viðræðna fór Starfsgreinasambandið fram með þá skýru kröfu að lágmarkslaun yrðu 300 þúsund krónur innan þriggja ára. Auk þess var lögð áhersla á sérstakar hækkanir hjá starfsfólki í útflutningsgreinum. Órofa samstaða og kraftur félagsmanna í aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins […]