SGS semur við ríkið

Samninganefndir Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagsins undirrituðu samning við samninganefnd ríkisins í dag (7. október 2015), vegna starfsfólks aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins hjá ríkisstofnunum. Samningurinn er á svipuðum nótum og samið var um á almennum markaði í vor og gildir hann frá 1. maí síðastliðnum. Hækkun frá 1. maí er 25.000 krónur. Þann 1. júní árið 2016 hækka laun […]