Rafræn kosning um kjarasamninga ríkisstarfsmanna hefst á morgun

Rafræn kosning um kjarasamning félagsmanna í Verk Vest sem starfa hjá ríkisstofnunum hefst kl. 09.00 miðvikudaginn 21. október og henni lýkur á miðnætti fimmtudaginn 29. október. Bæklingar með kynningarefni og lykilorði fyrir kosninguna verða settir í póst í dag. Einnig verður hægt að fá aðstoð við kosningu hjá skrifstofum Verk Vest á Ísafirði og Patreksfirði. […]