Formannafundur ASÍ

Miðvikudaginn 28. október verður formannafundur ASÍ haldinn í Reykjavík. Fundurinn verður haldinn í sal Rafiðnaðarskólans að Stórhöfða. Reglulegir formannafundir ASÍ eru haldnir annað hvert ár, þ.e. þau ár sem þing ASÍ eru ekki haldin. Til fundarins koma formenn allra 50 aðildarfélaga Alþýðusambandsins ásamt formönnum deilda í blönduðum félögum. Verk Vest á fjóra fulltrúa á fundinum […]