Deilihagkerfið ryður sér til rúms í gisti- og ferðaþjónustu

Deilihagkerfið hefur verið mikið til umræðu í hinni alþjóðlegu verkalýðshreyfingu undanfarið enda tilefni til að hafa töluverðar áhyggjur af þróun þess og áhrifum á kjör og aðbúnað launafólks. Nauðsynlegt er að gera skýran greinarmun á deilihagkerfinu þar sem fólk skiptist á þjónustu án þess að gjald komi fyrir og deilihagkerfinu sem er beinlínis orðinn atvinnurekstur. […]