Aukin og bætt þjónusta við félagsmenn

Stjórn Verk Vest hefur að undanförnu unnið að breytingum á starfsemi félagsins á Ísafirði og Patreksfirði. Breytingarnar felast fyrst og fremst í aukinni þjónustu við félagsmenn á starfssvæðinu. Á Patreksfirði hefur Stefanía Árnadóttir verið ráðin í hlutastarf á móti Hrönn Árnadóttur og í kjölfarið hefur opnunartími skrifstofunnar á Patreksfirði verið lengdur og er opið frá […]