Skora á Samtök atvinnulífsins að virða löglega boðað verkfall í Straumsvík og ganga til samninga við starfsmenn.

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga skorar á Samtök atvinnulífsins að virða löglega boðað verkfall verkamanna Río tinto í Straumsvík og beita sér fyrir því að gera nýjan kjarasamning hið fyrsta. Félagsdómur hefur þegar úrskurðað verkfallsaðgerðir starfsmanna við álverið í Straumsvík löglegar. Samtök atvinnulífsins eiga því að taka af skarið og stöðva lögbrot fyrirtækisins gegn löglega boðaðri vinnustöðvun […]