ASÍ 100 ára – „Réttindi okkar duttu ekki af himnum ofan“

…“Skylda launafólks er að styðja hvort annað í baráttunni fyrir bættum kjörum og framförum í réttindamálum okkar. Baráttan fyrir réttindunum sem flestir telja sjálfsögð hefur kostað íslenska alþýðu blóð svita og tár. Verkafólk má ekki láta etja sér saman líkt og var ástundað fyrir miðja síðustu öld þegar þrengdi að á vinnumarkaði. Á þeim tíma var reynt að brjóta niður baráttuvilja verkafólks með öllum tiltækum ráðum. Við megum ekki láta slíkt henda aftur, til of mikils hefur verið barist. Gleymum ekki að réttindin duttu ekki af himnum ofan. Fyrir þeim hefur verið barist í rúm 100 ár…“