Verkalýðsfélagið Baldur á Ísafirði 100 ára

Það var 1. apríl 1916 sem 44 verkamenn á aldrinum 18-66 ára stofnuðu Verkmannafjelag Ísafjarðar einsog það hét í fyrstu. Í ársbyrjun 1917 var nafni félagsins breytt og hét eftir það Baldur. Stjórn félagsins skipuðu Sigurður H. Þorsteinsson formaður, Kristján Dýrfjörð Kristjánsson varaformaður, Jón Gunnar Hallgrímsson ritari og Magnús Jónsson gjaldkeri. Félagið náði fljótt útbreiðslu […]