Nýtt greiðsluþátttökukerfi Heilbrigðisráðherra – kostnaður fluttur á almenna notendur heilbrigðisþjónustu

Með nýju greiðsluþátttökukerfi má gera ráð fyrir verulega aukinni kostnaðarþátttöku sjúklinga í heilbrigðiskerfinu. Þetta kom fram í máli Hennýjar Hinz hagfræðings hjá ASÍ í fyrirlestri um nýtt greiðsluþátttökukerfi Heilbrigðisráðherra. Henný benti á að allt frá árinu 1980 hefði greiðlsuþátttaka sjúklinga í heilbrigðisþjónustu verið að aukast. Árið 1980 var greiðsluþátttaka ríkisins um 88% á móti 12% […]