Baldur og Sjómannafélagið – 100 ára barátta launafólks

Í tilefni þess að samtök verkafólks og sjómanna hafa starfað á Ísafirði samfleytt í eina öld verður opnuð sýning á Gamla sjúkrahúsinu á Ísafirði. Á sýningunni verður brugðið upp ljósi á sögu Verkalýðsfélagsins Baldurs og Sjómannafélags Ísfirðinga frá árinu 1916 til okkar tíma með ljósmyndum, lifandi myndum, munum og minjum til heiðurs verkafólki og sjómönnum […]