Afnám tolla á fatnaði og skóm skilar sér ekki

Í upphafi árs voru tollar felldir niður af fatnaði og skóm. Samkvæmt mati Fjármála- og efnahagsráðuneytis átti afnámið að skila að meðaltali 13% verðlækkun til neytenda á þeim vörum sem áður báru tolla. Áætlað var að um 60% vara í vöruflokknum bæru toll fyrir breytingarnar. Því má áætla að afnám tolla af fötum og skóm […]