Verkfallsboðun sjómanna í Verk Vest samþykkt með 82% atkvæða

Niðurstaða í kosningu um verkfallsboðun hjá sjómönnum sem starfa samkvæmt aðalkjarasamningi ASV við SFS ( áður LÍÚ ) á félagssvæði Verkalýðsfélags Vestfirðinga liggur fyrir. Sjómenn í félaginu sýndu með afgerandi hætti stuðning við verkfallsboðun en 82% þeirra sem greiddu atkvæði kusu með verkfallsboðun. Einungis 16% greiddu atkvæði á móti verkfallsboðun og 2% tóku ekki afstöðu. […]