Atkvæðagreiðslu um kjarasamning sjómanna lýkur á morgun

Verk Vest hefur haldið þrjá kynningafundi um endurnýjaðan kjarasamning sjómanna bæði á Ísafirði og Patreksfirði. Fundirnir hafa verið mjög málefnalegir þó svo ljóst sé að hljóðið í sjómönnum sé þungt og skal engan undra. Rauði þráðurinn í samtölum við sjómenn er að taka þurfi olíuverðsviðmið til gagngerrar endurskoðunar og gera þurfi betur vegna nýsmíðaálagsins, þó […]