Fréttatilkynning frá Sjómannasambandi Íslands

Þegar viðræðum sjómanna og útvegsmanna var slitið s.l. föstudag setti Ríkissáttasemjari fjölmiðlabann á samninganefndarmenn. Ekki má ræða efnisatriði kjaraviðræðna né það sem skeður á fundum undir stjórn Ríkissáttasemjara. Sáttaemjari hafði varla lokið máli sínu þegar SFS greinir frá bókun sem fulltrúar sjómanna settu fram. SFS gerir því skóna að bókunin sé í raun ný krafa […]