Petra Hólmgrímsdóttir er nýr ráðgjafi Virk á Vestfjörðum

Petra Hólmgrímsdóttir hefur verið valin hæfust úr hópi sjö umsækjenda um stöðu starfsendurhæfingarráðgjafa Virk hjá stéttarfélögunum á Vestfjörðum. Petra tekur formlega við keflinu af Fanney Pálsdóttur þann 1. júní næst komandi, en þá mun Fanney fara í árs leyfi frá störfum. Petra er aðfluttur Ísfirðingur, sem kann vel við sig á landsbyggðinni að eigin sögn. […]