4. apríl – Síðasti dagur umsókna um sumarhús.

Við viljum minna félagsmenn okkar á að í dag er síðasti dagur til þess að sækja um og vera með í fyrstu úthlutun. Skráning á http://orlof.is/verkvest/ – Umsókn 2017. Skrifstofur VerkVest eru opnar til kl. 16:00 og hægt að hafa samband í síma: 456 5190.
Innköllun aflaheimilda og arðinn til fiskverkafólks

„Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga lýsir stjórnvöld ábyrg fyrir fjöldaatvinnuleysi fiskverkafólks verði hótanir Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) um útflutning starfa í fiskvinnslu að veruleika. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi líta á óveiddan fisk sem einkaeign sem þeir hafi heimild til að ráðstafa að vild og véla þannig með lífsviðurværi heilu byggðarlaganna. Hótanir forsvarsmanna fyrirtækja í sjávarútvegi um […]