Formleg opnun Blábankans á Þingeyri

Blábankinn nýsköpunar- og þjónustumiðstöð opnaði formlega á Þingeyri 20. september. Verkalýðsfélag Vestfirðinga verður samstarfsaðili Blábankans, en félagið á eingarhlut í húsnæðinu á móti Landsbankanum. Samfélagsverkefnið Blábankinn stendur og fellur með íbúunum á þingeyri og virkni þeirra í þátttöku með verkefnum Blábankans. Til stendur að vera með fasta opnunartíma frá mánudögum til fimmtudags frá kl.12 – […]

Mikilvæg hagsmunamál rædd á borgarafundi Vestfirðinga á Ísafirði

Sveitarfélögin á Vestfjörðum, Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Tálknafjarðarhreppur, Vesturbyggð, Reykhólahreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð og Árneshreppur, boða ásamt Fjórðungssambandi Vestfirðinga og Verkalýðsfélagi Vestfirðinga til borgarafundar í íþróttahúsinu á Ísafirði nk. sunnudag 24. september kl. 14. Á fundinum verða rædd ein mikilvægustu hagsmunamál fjórðungsins um þessar mundir sem snúast öll um mikilvæga innviðauppbyggingu á Vestfjörðum. Meðal annars verður gerð […]