Ögrun við launafólk – ályktun frá Landssambandi íslenzkra verzlunarmanna

Stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna mótmælir harðlega þeirri sjálftöku launa sem á sér stað meðal stjórnenda í íslenskum fyrirtækjum. Allt frá því að kjararáð gaf tóninn með hækkun launa til þingmanna og forstöðumanna stofnana hefur orðið til hyldýpi milli þessara aðila og launafólks. Þrátt fyrir að ákvörðunum kjararáðs hafi verið mótmælt harðlega og þrátt fyrir að […]