Yfirlýsing vegna afturköllunar starfs- og rekstraleyfa fiskeldisfyrirtækja á Vestfjörðum

Fiskeldi á Vestfjörðum er að verða burðarás atvinnulífs á Vestfjörðum. Vanhugsaðar stjórnvaldsaðgerðir með afturköllun starfs- og rekstrarleyfa fiskeldisfyrirtækja hafa valdið ótta, óöryggi og reiði íbúa á Vestfjörðum. Sú atburðarás, ef ekkert verður að gert, mun hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir Vestfirði og samfélagið þar til frambúðar. Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga fordæmir slíkar aðgerðir og mun ekki sætta […]