Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga haldinn miðvikudaginn 17. maí 2017 kl.18.00 á Hótel Ísafirði.
Boðið verður upp á léttan málsverð í upphafi fundar.
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar
Kynntur ársreikningur fyrir starfsárið 2016
Lýst kjöri stjórnar, varamanna, trúnaðarráðs og skoðunarmanna
Tillaga um lagabreytingar
Tillögur um reglugerðabreytingar:
a) Sjúkrasjóðs
Kosning framkvæmdastjórnar sjúkrasjóðs
Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð
Lögð fram tillaga um laun til stjórnar og nefnda
Önnur mál
Allir félagsmenn eiga jafnan atkvæðis- málfrelsis- og tillögurétt á aðalfundi og eru hvattir til að nýta sér þann rétt.
Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga


