Opinn fundur trúnaðarráðs Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn á Hótel Ísafirði mánudaginn 23. október kl.18.30.
Boðið verður upp á ekta íslenska kjötsúpu.
Dagskrá.
Skattbyrði launafólks 1998 – 2016. Henný Hinz deildarstjóri hagfræðideildar ASÍ kynnir helstu niðurstöður og ræðir innihald skýrslunnar.
Vinnustaðaeftirlit í samstarfi stéttarfélaga á Vestfjörðum og Vesturlandi – Einn réttur ekkert svindl! María Lóa Friðjónsdóttir verkefnastjóri vinnustaðaeftirlits hjá Verk Vest kynnir starfið.
Helstu áherslur í kjara- og atvinnumálum frá þingum Starfsgreinasambands Íslands og Landssambands íslenskra verslunarmann.
Önnur mál
Stjón Verkalýðsfélags Vestfirðinga hvetur félagsmenn til að mæta og kynna sér þau mál sem helst brenna á launafólki í aðdraganda kosninga og endurnýjun kjarasamninga.


