Vextir sjóðfélagalána hjá lífeyrissjóðnum Gildi lækka

Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs hefur ákveðið að lækka vexti á lánum til sjóðfélaga frá og með 5. janúar 2018. Breytilegir vextir verðtryggðra grunnlána lækka úr 3,25% í 3,05% og verðtryggðra viðbótarlána lækka úr 4,00% í 3,80%. Fastir vextir verðtryggðra grunnlána lækka úr 3,60% í 3,55% og verðtryggðra viðbótarlána úr 4,35% í 4,30%. Breytilegir vextir óverðtryggðra grunnlána lækka úr 5,70% í 5,55% og óverðtryggðra viðbótarlána úr 6,45% í 6,30%. Kjör sjóðfélagalána hjá Gildi-lífeyrissjóði eru áfram með þeim hagstæðustu sem bjóðast á íbúðalánamarkaði.

Grunnlán allt að
65% lánshlutfall

Viðbótarlán
65 – 75% lánshlutfall

Verðtryggt –
breytilegir vextir

3,05%
3,80%

Verðtryggt –
Fastir vextir

3,55%
4,30%

Óverðtryggt –
breytilegir vextir

5,55%
6,30%