Námskeið: Streita, álag og kulnun

Félagsmálaskóli Alþýðu beitir sér fyrir styrkingu starfsfólks á vinnumarkaði og býður nú upp á námskeið til að fyrirbyggja og takast á við streitu álag og kulnun.
Streita, álag og kulnun  – Fræðsla og vinnustofa með virkri þátttöku (fjarnámskeið)
Lærðu hagnýtar leiðir til að stýra álagi, minnka streitu og fyrirbyggja kulnun í lífi og starfi með Steinunni Ingu, sérfræðingi í streitustjórnun. 
Á þessari stuttu vinnustofu mun Steinunn fara yfir fjölbreytt verkfæri til að efla vellíðan og stjórna streitu. Farið verður sérstaklega í streitu- og álagsstjórnun með áherslu á praktísk ráð og verkfæri sem þú getur nýtt strax.
Meðal efnis: „Flýtum okkur hægt“ og notum „gula ljósið“ Öndun sem streitustjórnunartæki Hlutverkatogstreita og mikilvægi marka Hlustum á varúðarbjöllur og fyrirbyggjum kulnun
Leiðbeinandi: Steinunn Inga Stefánsdóttir, MSc í streitufræðum og viðskiptasálfræði.
Skráningu lýkur 9. október kl. 12:00 Þeir sem skrá sig fá hlekk á Zoom í tölvupósti deginum áður en námskeiðið hefst.
Náðu tökum á streitu og álagi í dag!
Upplýsingar

Dagsetning: 10/10/2024 – 10/10/2024
Tími: 09:00 – 12:00
Staður: Fjarkennsla á vefnum í gegnum Zoom
Verð: 14900 ISK

ATHUGIÐ AÐ FÉLAGSMENN VERK VEST GETA SÓTT UM FRÆÐSLUSTYRK TIL NIÐURGREIÐSLU Á NÁMSKEIÐSGJALDI.