Höggvið á hnútinn og það strax !

Stjórnarfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga haldinn 4. ágúst
2011, hvetur Byggðastofnun, Landsbanka Íslands og skiptastjóra þrotabús
Eyrarodda til að höggva á hnút óvissu í atvinnumálum Flateyringa. Algjört
neyðarástand hefur ríkt á meðan áðurnefndir aðilar hafa dregið lappirnar og
þvælst hver fyrir öðrum í ákvarðanatökum með þeim afleiðingum að fiskvinnsla er
nánast að leggjast af á Flateyri. Þeirri hvatningu er beint til valdhafa ásamt pengingaöflum
og skiptaráðanda að sýna áræðini og
stórhug í ákvarðanatöku um framtíð fiskvinnslu á Flateyri.
Hætta er á að algjör
fólks flótti bresti á verði ekki gripið til bráðaaðgerða svo hægt verði að
hefja vinnslu á Flateyri að nýju. Neyðarkalli heimamanna frá því í vetur hefur
enn ekki verið svarað þannig að hægt sé að byggja á til framtíðar.
Stjórnarfundurinn fordæmir þau vinnubrögð sem áðurnefndir aðilar hafa viðhaft
og skorar á Byggðastofnun, Landsbankann og skiptaráðanda sem hafa atvinnulíf Flateyringa
í heljargreipum, að hætta að benda hver á annan og höggva á hnútinn, og það
strax.