Normal
0
21
false
false
false
IS
X-NONE
X-NONE
MicrosoftInternetExplorer4
/* Style Definitions */
table.MsoNormalTable
{mso-style-name:”Table Normal”;
mso-tstyle-rowband-size:0;
mso-tstyle-colband-size:0;
mso-style-noshow:yes;
mso-style-priority:99;
mso-style-qformat:yes;
mso-style-parent:””;
mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;
mso-para-margin:0cm;
mso-para-margin-bottom:.0001pt;
mso-pagination:widow-orphan;
font-size:10.0pt;
font-family:”Rockwell”,”serif”;}
Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga tók fyrir á fundi í gærkvöldi bréf sem 14 félagsmenn stéttarfélaga víðsvegar af landinu skrifa undir. Í bréfinu kemur fram hörð gagnrýni á afgreiðslu framkvæmdarstjórnar Starfsgreinasambands Íslands (SGS) á starfslokum fyrrum framkvæmdarstjóra sambandsins. En á framkvæmdarstjórnarfundi SGS þann 4. júlí s.l. samþykkti meirihluti framkvæmdarstjórnarmanna að gerður yrði starfslokasamningur við framkvæmdarstjórnann fyrrverandi þrátt fyrir að í skýrslu óháðra matsaðila hafi komið fram ærin ástæða til að kæra málið til lögreglu. Stjórn Verk Vest lýsir yfir fullum stuðningi við bréfið og hvetur þau sem undir það rita til að halda kyndli sannleikans áfram á lofti. Þess má geta að formaður Verk Vest ásamt formönnum Bárunnar á Selfossi, Verkalýðsfélags Akraness og Framsýnar á Húsavík greiddu atkvæði á móti tillögu um að gerður yrði starfslokasamningur við framkvæmdastjórann fyrrverandi. Umræddur starfslokasamningur kostar SGS átt í 9 milljónir króna þrátt fyrir að skýrslur óháðra matsaðila hafa sýnt fram á mjög alvarlega bort framkvæmdarstjórans í starfi fyrir SGS.Hér á eftir er bréfið í heild sinni ásamt afriti af bréfi sem sent var til formanns SGS og á MBL.IS. Nánast engin umfjöllun hefur verið um þetta grafalvarlega mál í hinum frjálsu fjölmiðlum á Íslandi og vekur það mikla furðu stjórnar Verk Vest.”Ágæti formaður
Eftirfarandi bréf hefur
verið sent til formanns Starfsgreinasambandsins og til Morgunblaðsins.
Ástæðan er að við erum
nokkur hópur félagsmanna víða af landinu sem er mjög ósáttur við afgreiðslu
framkvæmdarstjórnar Starfsgreinasambandsins í kjölfarið á skoðun sem framkvæmd
var á fjárreiðum sambandsins. Erfiðlega hefur gengið að fá haldbær svör og því
er þessi leið farin. Formaður sambandsins lagði fram þá tillögu sem samþykkt
var og því er þessum spurningum beint til hans. Ekki var einhugur um þessa
afgreiðslu innan stjórnarinnar og vildi hluti stjórnar fara aðra leið sem hefði
verið eðlilegri að okkar mati.
Við teljum að meirihluti framkvæmdastjórnar
hafi tekið ranga ákvörðun um starfslok framkvæmdarstjóra og erum ósátt við þá
ákvörðun að skoða ekki fjármálin lengra aftur í tímann fyrst á annað borð er
grunur um misferli. Það er krafa að það verði síðar skoðað.
Eins og þetta tiltekna
mál lítur út fyrir okkur þá er ekkert sem segir okkur að hagsmunir hins almenna
félagsmanns hafi verið hafðir að leiðarljósi. Frekar hafa menn tilfinningu
fyrir því að þarna sé verið að halda hlífiskildi yfir ákveðnum aðilum til að
tryggja að þeir þurfi ekki að taka afleiðingum gerða sinna frekar en nokkur
annar í þessu samfélagi sem á annað borð hefur komist í einhverja ábyrðarstöðu.
Við teljum þetta bera vott um hugarfar sem á ekki heima í verkalýðsbaráttu þar
sem hver króna í umslag launamannsins kostar blóð, svita og tár og baráttan
fyrir að halda því sem náðst hefur er hörð og óvægin.
Málið snýst um gagnrýni okkar
er á vinnubrögð og hugarfar forystunnar. Við teljum að verkalýðshreyfingin eigi
að ganga í fararbroddi með bætt vinnubrögð og gegnsæi í ákvörðunum sínum og
gerðum
Forystumenn okkar eru leiðtogar þess hóps í
þessu samfélagi sem hvað minnst ber úr býtum á vinnumarkaðnum og teljum að öll
vinnubrögð eigi að vera hafinn yfir allan vafa um að eitthvað annað ráði en
hagsmunir félagsmanna.
Við teljum ennfremur að á
tímum sem þessum þar sem launamenn eiga í vök að verjast þá eigi það að vera
forgangsmál okkar að endurvekja traust á verkalýðshreyfingunni og safna félagsmönnum
á bak við forystuna svo viðsemjendur okkar fari ekki í neinar grafgötur með það
afl sem sameinuð verkalýðshreyfing er.
Við teljum almennt að
vinnubrögðum innan verkalýðshreyfingarinnar sé í mörgu áfátt þrátt fyrir að þar
séu innanborðs hið mætasta fólk sem ekki má vamm sitt vita. Við teljum
nauðsynlegt að málefni okkar séu rædd opinskátt og séu teknar ákvarðanir sem
klárlega vekja upp spurningar hjá félagsmönnum þá þurfi skýringar að fylgja svo
ekki skapist andrúmsloft tortryggni og sundrungar. Það er það síðasta sem við
þurfum á að halda núna. Mál af þessu tagi býður upp á spurningar sem félagsmenn
eiga fullan rétt á að fá svör við frá sínum forystumönnum.
Bak við ykkur forystumenn
stendur stór hópur fólks sem er tilbúinn til að styðja ykkur til allra góðra
verka. Til að vekja áhuga og kraft þessa
fólks þá þarf öll umræða að vera uppi á borðinu og öll vinnubrögð hafin yfir
allan vafa.
Við munum halda áfram
þessari baráttu okkar áfram þar til menn eru tilbúnir til að setjast niður og
ræða stöðuna og hvernig hægt er að bæta hlutina. Þessi umræða þarf að fara fram
sem víðast, ekki bara í hópi forystumanna heldur innan félaganna, á síðum
blaðanna, í netheimum og ekki síst í hjarta hvers þess sem gefur sig út fyrir
að starfa til heilla launamönnum.
Að endingu óskum við
eftir að þetta verði birt á heimasíðu félags yðar, félögum til upplýsingar.Til formanns Starfsgreinasambands
Íslands, Björns SnæbjörnssonarÁ fundi SGS 26 maí síðastliðinn var samþykkt tillaga Björns Snæbjörnssonar um
starfslok Skúla Thoroddsen vegna trúnaðarbrests. Í afgreiðslunni fellst að gerður verði
stafslokasamningur sem tryggir Skúla laun á uppsagnafresti ásamt orlofi og áunnum réttindum og að hann
verði einungis endurkrafinn um hluta þess fjár sem hann er grunaður um að hafa
dregið sér.
Spyrja verður hvort þessi viðbrögð framkvæmdastjórnarinnar séu viðtekin
venja komi sambærileg mál upp innan raða forystumanna hreyfingarinnar og hvort
þeir formenn félaga sem stóðu að umræddri samþykkt séu með henni að víkja
hreyfingunni undan ábyrgð á spillingu innan eigin raða. Þá
viljum við undirritaðir félagsmenn stéttarfélaga í Starfsgreinasambandi
Íslands, fá svör formanns SGS við
eftirfarandi spurningum og óskum eftir að þau svör verði birt sem fyrst á opinberum
vettvangi, almennum félagsmönnum til glöggvunar.
1.
Hvers vegna
er grun um refsivert misferli í starfi ekki fylgt eftir með ákæru?2.
Voru hagsmunir félagsmanna í SGS hafðir að
leiðarljósi þegar þú lagðir fram þá tillögu sem samþykkt var af meirihluta
framkvæmdarstjórnar?3.
Hvað kostar þessi starfslokasamningur?4.
Telur þú sem forystumaður í verkalýðshreyfingunni
að þessi viðbrögð við skýrslu Deloitt séu til þess fallin að auka traust á
verkalýðshreyfingunni?5.
Telur þú
sem formaður stærstu samtaka launþega innan Alþýðusambands Íslands ekki
eðlilegt að birta frétt á heimasíðu sambandsins um gagngera breytingu í
starfmannahaldi SGS með útskýringum?
Þessum spurningum er beint til Björns Snæbjörnssonar formanns SGS sem lagði
fram tillögu fyrir framkvæmdarstjórn Starfsgreinasambands Íslands um að semja
við Skúla Thoroddsen um starfslok þrátt fyrir að rökstuddur grunur sé um
umboðssvik og fjárdrátt. Við teljum að Björn verði að útskýra fyrir okkur
sauðsvörtum almúganum hvers vegna sumir eru jafnari fyrir lögunum en aðrir, svo
við getum tekið mið af því í okkar störfum sem við kunnum að takast á hendur fyrir
verkalýðshreyfinguna.
Loftur Guðmundsson, Bárunni stéttarfélagi
Ragnhildur Eiríksdóttir, Bárunni stéttarfélagi
Hjalti Tómasson Bárunni stéttarfélagi
Agnes Einarsdóttir, Framsýn stéttarfélagi
Olga Gísladóttir, Framsýn stéttarfélagi
Svava Árnadóttir, Framsýn stéttarfélagi
Valdimar Gunnarsson, Einingu – Iðju
Tryggvi Jóhannesson, Einingu – Iðju
Ólafur P. Agnarsson, Einingu – Iðju
Óskar Guðjón Kjartansson, Drífanda stéttarfélagi
Albert Sævarsson, Drífanda stéttarfélagi
Gunnhildur Elíasdóttir, Verkalýðsfélagi Vestfirðinga
Eygló Jónsdóttir, Verkalýðsfélagi Vestfirðinga
Sigurjón Skæringsson, Eflingu, stéttarfélagi
”