Þar sem veiðar á inndjúpsrækju eru nú hafnar að nýju eftir alllangt hlé er rétt að benda sjómönnum og útgerðaraðilum á að eldri samningar um skiptakjör sjómanna er enn í fullu gildi. En í samningnum um inndjúpsrækjuveiði segir að þegar bátar stunda rækjuveiðar skuli skipverjar hafa í sinn hlut aflaverðmæti, sem hér segir:a. Hásetar 17,5%b. Vélstjórar og netamenn 26,75%(Netamenn eru hásetar sem vinna með skipstjóra að viðhaldi veiðarfæra og búnaðar skips á meðan vertíð stendur).Þá er einnig tiltekið að greiðsla fyrir einstaka sjóferðir á rækjuveiðum við Ísafjarðardjúp skuli vera vera 19% af aflaverðmæti. Olía á rækjuveiðum við Ísafjarðardjúp skal dregin frá óskiptu.