Bónus var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í þremur lágvöruverðverslunum og fjórum stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu og Ísafirði mánudaginn 20. febrúar. Verslanirnar Kostur og Víðir neituðu að taka þátt í könnuninni. Hæsta verðið var oftast að finna hjá Samkaupum-Úrvali eða í um helmingi tilvika en lægsta verðið var eins og áður sagði oftast að finna hjá Bónus. Í yfir helmingi tilvika var verðmunurinn á hæsta og lægsta verði allt að 25% og í þriðjungi tilvika var á milli 25-50% verðmunur.Flestar vörurnar sem skoðaðar voru í könnuninni voru til hjá
Hagkaupum eða 104 af 110, næstflestar hjá Fjarðarkaupum eða 101, Nóatún og
Samkaup Úrval áttu til 94. Fæstar vörurnar í könnuninni voru fáanlegar í Bónus
eða 81, Nettó átti 85 og Krónan 92.
Af þeim 110 vörutegundum sem skoðaðar voru var Samkaup-Úrval
með hæsta verðið í 58 tilvikum, Hagkaup í 31, Fjarðarkaup 21 og Nóatúni í 20.
Bónus var með lægsta verðið á 63 vörutegundum af þeim 110 sem skoðaðar voru. Krónan
var lægst í 29 tilvikum og Fjarðarkaup í 15. Þegar umbeðin vara var bæði til í
Bónus og Krónunni var um eða undir 2 kr. verðmunur í næstum helmingi tilfella.
Minnstur verðmunur á
mjólkurvörum Af þeim 22 mjólkurvörum, ost og viðbiti sem skoðaðar voru, var
verðmunurinn undir 25% í 17 tilvikum. Minnstur verðmunur var á léttmjólk, sem
var ódýrust á 109 kr./l. hjá Bónus, Krónunni og Fjarðarkaupum en dýrust var hún
á 110 kr./l. hjá
Nettó, Nóatúni, Hagkaupum og Samkaupum-Úrvali.
Verðmunurinn er 1 kr. eða 1%. Mestur verðmunur var á 10 eggjum frá Brúnegg, sem
voru dýrust á 768 kr. hjá Fjarðarkaupum en ódýrust hjá Krónunni á 580 kr.
verðmunurinn er 188 kr. eða 32%.
Meiri verðmunur var á öllum öðrum vöruflokkum í könnuninni.
Sem dæmi má nefna ávexti og grænmeti en verðmunurinn var í helmingi tilvika milli
50-75%. Mestur verðmunur var á spínati í poka sem var ódýrast á 1.630 kr./kg. hjá Krónunni
en dýrast á 2.850 kr./kg. hjá Nettó. Verðmunurinn er 1.220 kr./kg. eða 75%. Einnig
var 75% verðmunur á rófum sem voru ódýrastar á 199 kr./kg. hjá Krónunni en
dýrastar á 349 kr./kg. hjá Samkaupum-Úrvali. Minnstur verðmunur var á gulri melónu
sem var dýrust á 399 kr./kg. hjá Samkaupum-Úrvali en ódýrust á 295 kr./kg. hjá
Bónus sem gerir 35% verðmun.
Af öðrum vörum í könnuninni má nefna að mestur verðmunur í
könnuninni var á triple action tannkremi frá Colgate sem var dýrast á 5.427
kr./l. hjá Samkaupum-Úrvali en ódýrast á 2.450 kr./l. hjá Bónus. Verðmunurinn
er 2.977 kr. eða 122%. Ein 737 gr. dós af Swiss miss með sykurpúðum var dýrust
á 688 kr. hjá Fjarðarkaupum en ódýrust á 543 kr. hjá Bónus sem er 27% verðmunur.
Mömmu hindberjasaft var ódýrust á 798 kr. hjá Nóatúni en dýrust á 849 kr. hjá
Hagkaupum og Samkaupum-Úrvali sem er 6% verðmunur. Barnamatur frá Gerber
„eplamauk” var ódýrast á 149 kr./st. hjá Fjarðarkaupum en dýrast á 189 kr./st.
hjá Samkaupum-Úrvali sem er 27% verðmunur. Frosinn lambahryggur var ódýrastur á
1.498 kr./kg. hjá Hagkaupum en dýrastur á 1.898 kr./kg. hjá Nóatúni og Krónunni
sem er 27% verðmunur. Heimilisbrauð frá Myllunni var ódýrast á 298 kr./st. hjá
Fjarðarkaupum en dýrast á 334 kr./st. hjá Hagkaupum og Samkaupum-Úrvali sem er
12% verðmunur
Í könnuninni var skráð hilluverð vöru eða það verð sem
neytandinn hefur upplýsingar um inni í búðinni að hann eigi að greiða fyrir
vöruna. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur af merktu verði
við kassa var skráð afsláttarverð. Til að auðvelda verðsamanburð er skráð
mælieiningaverð vöru, þar sem pakkastærðir eru mismunandi eftir verslunum.Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Bónus Ísafirði,
Krónunni Árbæ, Nettó Mjódd, Fjarðarkaupum Hafnarfirði, Nóatúni Hringbraut,
Samkaupum-Úrvali Hafnarfirði og Hagkaupum Holtagörðum. Hér er aðeins um beinan
verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.
Verslunin
Kostur og verslunin Víðir neituðu þátttöku í könnuninni
Kostur Dalvegi og Víðir
heimiluðu ekki verðlagseftirlitinu að taka niður verð í verslunum sínum.