Normal
0
21
false
false
false
IS
X-NONE
X-NONE
/* Style Definitions */
table.MsoNormalTable
{mso-style-name:”Table Normal”;
mso-tstyle-rowband-size:0;
mso-tstyle-colband-size:0;
mso-style-noshow:yes;
mso-style-priority:99;
mso-style-qformat:yes;
mso-style-parent:””;
mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;
mso-para-margin-top:0cm;
mso-para-margin-right:0cm;
mso-para-margin-bottom:10.0pt;
mso-para-margin-left:0cm;
line-height:115%;
mso-pagination:widow-orphan;
font-size:10.0pt;
font-family:”Calibri”,”sans-serif”;
mso-fareast-font-family:Calibri;
mso-bidi-font-family:”Times New Roman”;}
Normal
0
21
false
false
false
IS
X-NONE
X-NONE
/* Style Definitions */
table.MsoNormalTable
{mso-style-name:”Table Normal”;
mso-tstyle-rowband-size:0;
mso-tstyle-colband-size:0;
mso-style-noshow:yes;
mso-style-priority:99;
mso-style-qformat:yes;
mso-style-parent:””;
mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;
mso-para-margin-top:0cm;
mso-para-margin-right:0cm;
mso-para-margin-bottom:10.0pt;
mso-para-margin-left:0cm;
line-height:115%;
mso-pagination:widow-orphan;
font-size:10.0pt;
font-family:”Calibri”,”sans-serif”;
mso-fareast-font-family:Calibri;
mso-bidi-font-family:”Times New Roman”;}
Eftir síðasta útspil
útvegsmanna ( LÍÚ) í kjarabaráttu sinni kom bersýnilega í ljós að ætlunarverk útvegsmanna
er að takast. Það er að reka fleyg milli sjómanna og stéttarfélaga þeirra og fá
sjómenn til stuðnigs við útvegsmenn í baráttunni við að lækka skiptakjör til
sjómanna. Ef marka má ummmæli þeirra sjómanna sem fjölmiðlafólk ræddi við á
Austurvelli í gær þá voru sjómenn mættir á Austurvöll til að sýna
útgerðarmönnum samstöðu og til að verja eigin kjör. Margir þeirra sjómanna sem
rætt var við voru mjög harðorðir gagnvart forustu sjómanna og stéttarfélaga sem
þeir ásökuðu um að hafa ekki staðið við bakið á sjómönnum. Með þessu sannast að
áróðursmaskína útvegsmanna virkar mjög vel. Við þessa sjómenn segi ég; kynnið ykkur málin betur hjá ykkar
stéttarfélögum. Forsvarsmönnum ykkar var ekki boðið á fundi útvegsmanna með
sjómönnum og starfsfólki þessara fyrirtækja. Þessi vinnubrögð útgvegsmanna og forsvarsmanna
fiskvinnslufyrirtækja brjóta í bága við fjórðu grein laga um stéttarfélög og
vinnudeilur, en þar segir:
Atvinnurekendum, verkstjórum og öðrum trúnaðarmönnum atvinnurekenda er
óheimilt að reyna að hafa áhrif á stjórnmálaskoðanir verkamanna
sinna, afstöðu þeirra og afskipti af
stéttar- eða stjórnmálafélögum eða
vinnudeilum með:
a. uppsögn úr vinnu eða hótunum um slíka
uppsögn,
b. fjárgreiðslum, loforðum um hagnað eða
neitunum á réttmætum greiðslum.
Fulltrúum
stéttarfélaga hefur beinlínis verið meinaður aðgangur að þessum fundum þegar
þeir ætluðu að gæta að því að ekki væri verið hóta starfsfólki ef það fylgdi ekki
útgerðinni að málum. Við núverandi aðstæður á vinnumarkaði hafa starfsmenn
engan annan valkost en að taka undir með sínum atvinnurekanda af ótta við
hugsanlegar afleiðingar. Starfsfólk mun verða fyrir fjárhagslegum skaða,
fiskvinnslum verður lokað um lengri eða skemmri tíma vegna heimatilbúins
hráefnisskorts, bónusar verða ekki greiddir í vinnslustöðvunum, sumarfrí
sjómanna raskast og hver ber skaðann ? Að sjálfsögðu starfsfólkið sjálft þrátt
fyrir fullyrðingar og loforð forsvarsmanna útvegsmanna um hið gagnstæða.
Þessari fullyrðingu til stuðnings var starfsfólki HG í Hnífsdal tilkynnt á
lokuðum fundi fyrr í vikunni að fyrirtækið myndi ekki greiða starfsfólki bónusa
á meðan vinnslustöðvun varir.
Við sjómenn vil ég segja
þetta; helsta markmið
útgerðarmanna í kjaraviðræðum var og er enn að lækka laun sjómanna burt séð frá
öllu tali um veiðigjöld. Helstu kröfur LÍÚ alveg frá upphafi kjaraviðræðna í
janúar 2011 voru og eru enn, að sjómenn taki enn meiri þátt í kostnaði útgerðarinnar. Þetta get ég
fullyrt þar sem ég hef tekið þátt í kjaraviðræðum forustu sjómanna við LÍÚ og
þekki því málin frá fyrstu hendi. Launlækkunum sjómanna ætla útvegsmenn að ná
fram með breytingum á hlutaskiptakerfinu þannig að minna komi til skiptanna
þegar hlutur skipverja í aflaverðmæti er reiknaður. Þessu hafa samtök sjómanna
hafnað með öllu. Það er ömurlegt hvernig
hræðsluáróður útvegsmanna um umtalsverða launaskerðingu til sjómanna verði veiðigjaldið
að veruleika er notaður gegn sjómönnum. Sérstaklega í ljósi þess að markmið
útgerðarinnar er að lækka laun þeirra hvort hvort sem veiðigjald verður sett á
eða ekki. Þessa staðreynd verða sjómenn að hafa í huga áður en þeir leggjast í
sæng með útgerðarmönnum til að verja kjör útgerðarmanna sjálfra og um leið
skerða eigin kjör.
Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga.