Stjórnvöld hafa ekki staðið við fjárfestingaráform í tengslum við gerð síðustu kjarasamninga

“Miðstjórn Samiðnar lýsir yfir
miklum vonbrigðum með að áform stjórnvalda um fjárfestingar hafi ekki
gengið eftir og telur það brot á samkomulagi aðila vinnumarkaðarins og
ríkisstjórnarinnar sem gert var í tengslum við síðustu kjarasamninga.Miðstjórnin
skorar á ríkisstjórnina og Alþingi að ljúka nú þegar ákvörðunartöku og
undirbúningi fyrir byggingu nýs Landspítala og nýs fangelsis svo hægt
verði að hefja framkvæmdir strax á nýju ári. Nú þegar verði bygging
Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur boðin út. Hafnar verði framkvæmdir í
vegagerð m.a. á suðvesturlandi og lokið verði við fjármögnun
Vaðlaheiðarganga. Miðstjórn ítrekar jafnframt áskorun sína til Alþingis
að afgreiða rammaáætlun fyrir áramót og tryggja að ekki verði um
flokkpólitísk inngrip í hana.Þá
skorar miðstjórn Samiðnar á velferðaráðherra að ljúka nú þegar
endurskoðun á lögum um húsnæðisstuðning og skapa þar með ungu fólki
möguleika á öruggu húsnæði.Ljúki
Alþingi og ríkisstjórn ekki afgreiðslu þessara mála fyrir áramót er
ljóst að framkvæmdir dragast fram á árið 2014. Slíkur seinagangur væri
ábyrgðarleysi sem mun leiða til verri lífskjara launafólks og hægja á
þeim efnahagsbata sem gert var ráð fyrir þegar núverandi kjarasamningar
voru samþykktir.”Ályktunin var samþykkt á miðstjórnarfundar Samiðnar dagana 24. og 25. september á Akureyri