Normal
0
21
false
false
false
IS
X-NONE
X-NONE
MicrosoftInternetExplorer4
Þann 16. maí sl. var undirritaður „Samstarfssamningur um
vettvangsheimsóknir á vinnustaði“ milli ASÍ, SA og RSK. Markmið
samstarfssamningsins er að með virkum hætti sé lögð áhersla á mikilvægi
reglufestu og reglufylgni og stuðla þannig að heilbrigðari starfsháttum. Með
því að stuðla að bættri tekjuskráningu, að starfsmenn séu skráðir á launaskrá
og að formreglur séu á annan hátt haldnar. Tryggja betir skil á opinberum
gjöldum ásamt lögboðnum og samningsbundnum framlögum til lífeyrissjóða og
stéttarfélaga eigi sér stað með réttum hætti. Samhliða leiðbeiningum um
skyldur smærri og meðalstórra fyrirtækja verði lögð rík áhersla á að stemma
stigu við svartri atvinnustarfsemi. Verkefnið Felur í sér að kanna og fylgja því eftir
að atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og
kjarasamningum.
Verkefnaskipulag verður í meginatriðum þannig að tekin verði
fyrir annars vegar staðbundin starfsemi og hins vegar valdar atvinnugreinar.
Framvinda verkefnisins er í höndum verkefnisstjórnar er stýrir vali verkefna og
ákveður fyrirkomulag að öðru leyti. Sérstök áhersla verður lögð á ferðaþjónustu
og bygginga- og verktakastarfsemi en einnig verður ábendingum frá almenningi og
eftirlitsfulltrúum ASÍ/SA fylgt eftir.
Verkefnið mun eins og fyrri samstarfsverkefni framangreindra
aðila bera yfirskriftina „Leggur þú þitt af mörkum?“. Verkefnið verður kynnt
formlega á næstu dögum og mun fara í fullan gang í byrjun júní.
/* Style Definitions */
table.MsoNormalTable
{mso-style-name:“Table Normal“;
mso-tstyle-rowband-size:0;
mso-tstyle-colband-size:0;
mso-style-noshow:yes;
mso-style-priority:99;
mso-style-qformat:yes;
mso-style-parent:““;
mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;
mso-para-margin:0cm;
mso-para-margin-bottom:.0001pt;
mso-pagination:widow-orphan;
font-size:11.0pt;
font-family:“Calibri“,“sans-serif“;
mso-ascii-font-family:Calibri;
mso-ascii-theme-font:minor-latin;
mso-fareast-font-family:“Times New Roman“;
mso-fareast-theme-font:minor-fareast;
mso-hansi-font-family:Calibri;
mso-hansi-theme-font:minor-latin;
mso-bidi-font-family:“Times New Roman“;
mso-bidi-theme-font:minor-bidi;}