Ertu félagsmaður í Verk Vest? Starfaðir þú hjá sveitarfélagi á síðasta ári? Eða hættir þú vinnu hjá sveitarfélag á síðasta ári?
Í kjarasamningi Verk Vest við sveitafélög var stofnaður sérstakur félagsmannasjóður.
Atvinnurekandi greiðir mánaðarlegt framlag í sjóðinn sem nemur 2,2% af heildarlaunum félagsmanns og er greitt úr sjóðnum 1. febrúar ár hvert.

Allt félagsfólk í Verk Vest sem starfar hjá sveitarfélagi, eða störfuðu hjá sveitarfélagi, á félagssvæðinu á tímabilinu frá 1. janúar 2025 til 31. desember 2025 eiga að fá greitt úr félagsmannasjóði 1. febrúar nk. Athugið að greiðslan er staðgreiðsluskyld og ekki er tekin staðgreiðsla af upphæðinni sem greidd er út til félagsmanna. Því þarf að greiða staðgreiðsluna af þessum greiðslum eftir á.
Kennitala og bankaupplýsingar
Forsenda þess að hægt sé að greiða félagsfólki sem starfa eða störfuðu hjá sveitarfélagi á árinu 2025 úr sjóðnum 1. febrúar 2026 er að Verk Vest hafi kennitölu, bankaupplýsingar, síma og netfang félagsmanna.
Auðvelt er að skrá sig inn á Mínar síður þar sem kanna má hvort Verk Vest sé með réttar upplýsingar um viðkomandi félagsmann og lagfæra ef þörf krefur. Ef þú kemst ekki inn á síðuna, eða hefur einhverjar spurningar í sambandi við Félagsmannasjóðinn, þá máttu endilega senda tölvupóst á postur@verkvest.is eða hafa samband í síma 4565190.


