Hátíðarhöld 1.MAÍ 2024

 
 Að vanda höldum við uppá 1.Maí með glæsilegri dagskrá 
Á Ísafirði verður safnast saman við Alþýðuhúsið og mun kröfugangan leggja af stað þaðan klukkan 14:00
í heiðursfylgd lögreglu og lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar í fararbroddi.
Gengið verður að Edinborgarhúsinu þar sem Hátíðardagskrá hefst að lokinni göngu.

Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar flytur tónlist 
Bergvin Eyþórsson heldur ræðu 
Fagranesið tekur nokkur lög 
Barnakór Tónlistarskólans börn úr 3 til 4 bekk 
Pistill Dagsins Lísbet Harðar Ólafardóttir
Maraþonmenn tekur nokkur lög

Að lokinni hátíðardagskrá í Edinborg sér Slysavarnardeildin Iðunn
um kaffiveitingar í Guðmundarbúð.
Börnum á öllum aldri verður boðið í bíó. Klukkan 14:00 og 16:00 verður barnamyndin 10 Líf  sýnd í Ísafjarðarbíó 
en klukkan 20:00 verður sýnd kvikmyndin The fall guy  12 ára aldurstakmark.
Dagskrá á Suðureyri:
Kröfuganga frá Brekkukoti kl:14:00
Boðsund barna í Sundlaug Suðureyrar.
Hátíðardagskrá í félagsheimili Súgfirðinga:
Kaffiveitingar 1.Maí ávarp, ræða dagsins, söngur og tónlistarflutningur.
Flateyri
Bryggjukaffi kl 15:00 
Verklýðsfélagið Skjöldur 90.ára 
Hjómsveitin Æfing 55.ára
Sögur- myndir -tónar BIBarinn og Siggi Björnsson leiða dagskrá. 
Patreksfjörður 
Bíó fyrir börnin kl: 16:00 10.líf