Deilihagkerfið ryður sér til rúms í gisti- og ferðaþjónustu

Deilihagkerfið hefur verið mikið til umræðu í hinni alþjóðlegu verkalýðshreyfingu undanfarið enda tilefni til að hafa töluverðar áhyggjur af þróun þess og áhrifum á kjör og aðbúnað launafólks. Nauðsynlegt er að gera skýran greinarmun á deilihagkerfinu þar sem fólk skiptist á þjónustu án þess að gjald komi fyrir og deilihagkerfinu sem er beinlínis orðinn atvinnurekstur. Evrópsk samtök launfólks í matvæla-, ferðaþjónustu og landbúnaði (EFFAT), sem SGS er aðili að sendi á dögunum frá sér eftirfarandi yfirlýsingu um deilihagkerfið í ferðaþjónustu.
Tölvuvæðingin og tilkoma nýrra tegunda netviðskipta hefur gríðarmikil áhrif á ferðaþjónustu. Æ fleiri neytendur nota netið til að skipuleggja og bóka ferðalög sín og frí.
Undanfarin ár hefur mátt sjá „deilihagkerfi“ ryðja sér til rúms í gisti- og ferðaþjónustu. Deilihagkerfi felst í því að fólk deilir eignum sínum eða þjónustu tímabundið með öðrum, annaðhvort ókeypis eða gegn gjaldi, sem ýmist getur falist í fjárgreiðslu eða annars konar þóknun.
Rétt er að benda á umfjöllun RÚV um íslenska deilihagkerfið
Fólk hefur alla tíð deilt og skipst á vörum og þjónustu, svo þetta er ekki nýtt fyrirbæri. Með stafrænu byltingunni og tilkomu netsins hefur viðskiptum af þessu tagi þó verið lyft upp á nýtt stig. Orðinn er til vettvangur sem gengur í takt við framboð og eftirspurn og viðskipti geta átt sér stað í meiri mæli en áður hefur þekkst.
Deilihagkerfið hefur aukið hlut sinn á ferðaþjónustumarkaði hratt. Einstaklingar bjóða til dæmis fram heimili sín til gistingar (t.d. Couchsurfing og Airbnb), bíla sína sem samgöngumáta (t.d. Uber og BlaBlaCar) og þekkingu sína á heimastað sínum við leiðsögn (t.d. Greeters).
Oft uppfylla einstaklingar sem bjóða ferðamönnum eignir sínar eða þjónustu á forsendum deilihagkerfis ekki viðeigandi lög og skyldur sem skráð fyrirtæki í ferðaþjónustu þurfa að fylgja. Deilihagkerfi getur því auðveldlega orðið að skuggahagkerfi.
Ef aðilar aðrir en hótel selja stuttar dvalir og hafa mikil umsvif (nefna má að æ fleiri sem selja gistingu í gegnum Airbnb leigja út margar eignir) er ljóst að störf verða til (t.d. við þrif, viðhald og umsjón), en á hinn bóginn getur störfum við hefðbundna gistiþjónustu fækkað.
Umfangsmikil kaup á húsnæði í þéttbýli í þeim eina tilgangi að leigja húsnæðið út á slíkum „deilivettvangi“ á netinu leiðir víða til hærra húsnæðisverðs. Fyrir lág- og millitekjufólk verður því sífellt erfiðara að koma sér upp húsnæði og því neyðist það til að leita í úthverfi, sem hefur í för með sér að ferðatími til og frá vinnu lengist.
Markmiðið er ekki að binda enda á deilihagkerfi, því það er í takt við óskir neytenda, en stefna verður að gagnsæi, lögmæti og félagslegu réttlæti til að koma í veg fyrir að deilihagkerfið geti af sér ójafna samkeppni og undirboð.
EFFAT skorar á yfirvöld að:

afla betri gagna um umfang og áhrif deilihagkerfisins á fyrirtæki og atvinnustig í gisti- og ferðaþjónustu, og einkum um hversu mörg störf verða til innan atvinnugreinarinnar í gegnum deilihagkerfið, og af hvaða tagi þau störf eru
tryggja að allir þjónustuveitendur í gisti- og ferðaþjónustu lúti sömu lögum og reglum hvað varðar

skattlagningu (t.d. skatta á fyrirtæki, tekjuskatt, virðisaukaskatt, skatt á ferðamenn)
heilbrigði og öryggi neytenda og starfsfólks (t.d. brunavarnir, matvælaöryggi, hreinlæti)
skráningu (t.d. á fyrirtækjum og gestum)
löggjöf á sviði atvinnu- og félagsmála
neytendavernd
umhverfisvernd
borgarskipulag og húsnæðismál (t.d. hvað snertir íbúðahverfi, réttindi nágranna)
aðgengi
tryggingar
auðsýnilegar merkingar sem gefa til kynna gistiþjónustu til að tryggja að allir sitji við sama borð og að samkeppni eigi sér stað á jafnræðisgrundvelli.

setja reglur um að greiða skuli öll gjöld beint til viðeigandi yfirvalda í viðkomandi landi/svæði í gegnum rekstraraðila viðkomandi vettvangs, og að þjónustuveitendur innan deilihagkerfisins fái yfirlit frá rekstraraðilum vettvangsins um hagnað þeirra, þar sem gjöld og notkunargjöld fyrir vettvanginn komi sérstaklega fram
tryggja að í þeim tilvikum þegar þjónustuveitendur í deilihagkerfinu búi til störf séu þeir bundnir sömu skyldum gagnvart starfsfólki sínu og hefðbundin gistiþjónustufyrirtæki, þ.e. hvað varðar vinnuaðstæður, laun, almannatryggingar, heilbrigði og öryggi á vinnustað, kjarasamninga, réttindi starfsfólks, hæfi og þjálfun o.s.frv.
leitast eftir heildstæðri og samhæfðri reglugerð um deilihagkerfið á breiðari grundvelli (t.d. á landsvísu, í Evrópu, á heimsvísu)

EFFAT er reiðubúið að taka höndum saman við atvinnurekendur/aðila vinnumarkaðarins í Evrópu til að fylgjast með þróun deilihagkerfisins í gisti- og ferðaþjónustu og stuðla að réttlátri samkeppni og jafnri meðferð alls starfsfólks í atvinnugreininni.