Alþýðusamband Íslands fagnar 100 ára afmæli í ár og einn liður í að minnast þeirra tímamóta er afmælisboð ASÍ í Árbæjarsafni þann 28. ágúst nk. Alþýðusambandið býður frítt inn á safnið þann dag og fjölbreytta dagskrá sem bregður birtu á aðstæður og aðbúnað íslensks verkafólks á síðustu öld. Boðið verður upp á leiðsagnir, ratleik, þvottaburð, kassabílaakstur auk þess sem börnin fá stutta ferð á hestbaki. Þorskur verður þurrkaður á túni, Lummur bakaðar í Hábæ, prentari, skósmiður og gullsmiður taka á móti gestum á verkstæðum sínum og Lúðrasveit verkalýðsins þrammar um svæðið af sinni alkunnri snilld.
Leiðsagnir:Kl. 13 – Baráttan um brauðiðHenný Hinz, hagfræðingur ASÍ og fimm barna móðirSkoðuð verða áhrif þeirrar lífskjarabyltingar sem barátta verkalýðshreyfingarinnar hefur skilað undanfarna öld á neysluhætti almennings. Hagstærðir fortíðar settar í samhengi við nútímann.
Kl. 14 – Hjáverk kvennaMaríanna Traustadóttir, mannfræðingur og jafnréttisfulltrúi ASÍ: Varpað verður ljósi á frumkvæði og hugmyndarauðgi kvenna við atvinnusköpun á síðustu öld. Með tekjuöflun sinni náðu þær að skapa betri aðstæður fyrir sig og sína.
Kl. 15 – HúsnæðismálHalldór Grönvold, vinnumarkaðsfræðingur og áhugamaður um verkalýðssögu:Varpað verður ljósi á húsnæðisvanda verkafólks síðustu hundrað ár. Birtingarmyndir, þróunina og baráttu verkalýðshreyfingarinnar fyrir mannsæmandi húsnæði á viðráðanlegu verði.


