Á að segja kjarasamningum upp ?

Normal
0

21

false
false
false

IS
X-NONE
X-NONE

Normal
0

21

false
false
false

IS
X-NONE
X-NONE

Á næstu dögum mun skýrast hver afstaða félagsmanna innan ASÍ
er gagnvart endurskoðun kjarasamninga. Föstudaginn 18. janúar verður haldinn síðasti
formannafundur aðildarfélaga ASÍ áður en ákvörðun verður tekin um hvort ASÍ félögin
vilji segja kjarasamningum upp vegna forsendubrests. En forsendubrestur er
staðreynd og hefur verið allt frá haustdögum 2011. Eina forsendan sem hefur
haldið er kaupmátturinn, bara rétt svo.
Áður en ákvörðun um uppsögn eða ekki verður tekin þurfum við
að skoða stöðuna vandlega. Eru aðstæður til að sækja meira ef við segjum upp
samningum? Ætlar launafólk innan ASÍað
stefna á þríhliða samning og hafa stjórnvöld með í pakkanum? Eða ætla aðilar
vinnumarkaðarins að treysta á sjálfa sig í verkefninu? Samtök atvinnulífsins hafa þegar gefið út
yfirlýsingu um að þau muni ekki segja upp samningum, og séu ekki til viðræðna
um meiri launahækkanir. Á stjórnvöld er því miður lítið að stóla þrátt fyrir að
hafa komið inn með einhverja plástra, sem því miður hafa verið alltof fáir og
lítið bætt ástandið. Því má segja að ástandið sé í raun mjög víðsjárvert og
lítið þurfi út af að bera til að upp úr sjóði.
Nokkrar staðreyndir
og vangavelturÞað liggur fyrir að ef samningum verður ekki sagt upp þá munu
taxtalaun hækka um kr. 11.000 og önnur laun um 3,25% þann 1. febrúar 2013 og
samningurinn mun halda gildi sínu til 31. janúar 2014. Slík hækkun þýðir að
lágmarkstekjutrygging verður kr. 204.000 frá þeim tíma að telja. Það liggur
einnig fyrir að ef við segjum samningum upp þá koma þessar launahækkanir ekki
til framkvæmda. En samkvæmt nýlegri skoðunarkönnun hjá einum af stóru
stéttarfélögunum kemur í ljós að félagsmaður þeirra á taxtalaunum mun verða af
um 80.000 króna tekjum með uppsögn kjarasamninga fram til 31. janúar 2014 falli
ofangreindar hækkanir niður og ekki tekst að semja við SAHjá þeim sem eru á
hærri launum verður skellurinn þá nokkruð hærri í krónum talið.
En hvað er til ráða?
Skoðum stöðuna aðeins og förum yfir nokkrar fyrirliggjandi staðreyndir
sem er nauðsynlegt að hafa í huga áður en ákvörðun um uppsögn er tekin:
1.
Með uppsögn núna hljóta félagsmenn innan ASí þá
að ætla ná 11.000 krónunum á taxtana og 3,25% á önnur laun + það sem tapaðist
frá 1. febrúar þangað til nýjir kjarasamningar hafa náðst + hækkun launa til
viðbótar!
2.
Væri kannski betra að halda í samninginn og fá
inn hækkanir 1. febrúar og fara í góða undirbúningsvinnu inn í stéttarfélögunum
áður en kjarasamningur rennur út þann 31. janúar 2014?
3.
Ætlum við að gera þríhliða samning með stjórnvöldum?
Hvaða stjórnvöldum? Hvenær verður komin starfhæf ríkisstjórn að loknum
kosningum?
4.
Ekki er vitað hvenær samningar myndu nást, verði
farið af stað í uppsögn samninga.Eftir yfirlýsingar SA gætum við átt von á
langri samningalotu. Við værum þá hugsanlega að tala um að ná samningum í lok
september eða byrjun október, eða rétt áður en núgildandi samningar eiga að
renna út.
5.
Gengur slíkt dæmi upp? Er þetta raunhæfur kostur
miðað við núverandi stöðu á
vinnumarkaði?
Er endurskoðun kjarasamninga
tímaskekkja ?Í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins veturinn 2010 -11
voru ýmsar vangaveltur í gangi um tímalengd kjarasamningsins. Sitt sýndist
hverjum í þeim efnum, en niðurstaðan var að gera kjarasamning til 3ja ára með
forsenduákvæðum. Slíkt þýddi í raun að samningurinn yrði endurskoðaður í
tvígang á samningstímanum. Hverju hafa þessar endurskoðanir skilað hinum
almenna félagsmanni innan ASÍ ? Svarið
er einfalt, endurskoðun hefur engu skilað nema óvissu og óstöðugleika á
vinnumarkaði, sem er mjög slæmt fyrir okkar fólk.
Hefur endurskoðun einhverntíma skilað hinum almenna
félagsmanni einhverju? Jú einu sinni segja þeir sem þekkja söguna vel, kringum árið
2001 og þá með hækkun á desemberuppbót. Það er nú allt og sumt.
Endurskoðunarákvæði kjarasamninga frá 2008 skiluðu engu öðru
en að í miðjum hrunadansinum var launahækkunum félagsmanna okkar frestað og
þeim skipt upp. Ekki var það félagsmönnum okkar til mikilla hagsbóta, nema
síður sé. Í ljósi þeirra stöðu sem
kjaraviðræðurnar 2011 voru í hefði að okkar mati verið skynsamlegast að hafa
engin endurskoðunarákvæði eða að semja einfaldlega til skemmri tíma. Enda er
kjarasamningur með endurskoðunarákvæðum ekki annað en endurtekinn
skammtímasamningur með tilheyrandi óstöðugleika og óvissu á vinnumarkaði.
Formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga lagði mikla áherslu á
það í samningaviðræðunum 2011 að áhersla yrði lögð á að ná meiri launahækkunum
inn í samninginn gegn því að sleppa endurskoðunarákvæðum. Þannig væri stuðlað að
stöðugleika, meira öryggi og friði á vinnumarkaði í 3 ár. Slík leið hefði verið
okkur öllum mikils virði. Ef geta á í viðbrögð fulltrúa Samtaka atvinnulífsins
við hugmyndinni, þá var að sjá að það væri dans sem SA væri jafnvel til í að
stíga. Því miður var talað fyrir daufum
eyrum félaga okkar í samninganefndum ASÍ.
Átök á vinnumarkaði ?Við núverandi aðstæður er mikilvægt fyrir okkur öll að skoða
hvert við ætlum að stefna og hvaða markmiðum við viljum ná í kjaraviðræðum. Að
sjálfsögðu viljum við hærri laun, en væri ekki nokkurs virði að ná inn í
samninga ákvæði um að launahækkunum verði ekki dembt jafn óðum út í verðlagið?
Slíkt samkomulag gæti væntanlega hjálpað til við að viðhalda þeim kaupmætti sem
umsamdar launahækkanir eiga að færa okkar félagsmönnum. Vinnuveitendur verða líka að spyrja sig hvort
á það er hættandi að fara út í átök við núverandi aðstæður á vinnumarkaði.
Það er vissulega að mörgu að huga við endurskoðun
kjarasamninga. Við þurfum öll að spyrja okkur, hvort við erum tilbúin til að segja upp kjarasamningum frá 1. febrúar næstkomandi
ogfara í hörð átök við vinnuveitendur og hvort það sé líklegt til að ná fram ásættanlegum
kjarabótum? Í slíkri stöðu mun virkilega
reyna á samtöðu og samtakamátt launafólks.
Finnbogi
Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga
Ólafur Baldursson,
varaformaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga

/* Style Definitions */
table.MsoNormalTable
{mso-style-name:”Table Normal”;
mso-tstyle-rowband-size:0;
mso-tstyle-colband-size:0;
mso-style-noshow:yes;
mso-style-priority:99;
mso-style-qformat:yes;
mso-style-parent:””;
mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;
mso-para-margin-top:0cm;
mso-para-margin-right:0cm;
mso-para-margin-bottom:10.0pt;
mso-para-margin-left:0cm;
line-height:115%;
mso-pagination:widow-orphan;
font-size:11.0pt;
font-family:”Calibri”,”sans-serif”;
mso-ascii-font-family:Calibri;
mso-ascii-theme-font:minor-latin;
mso-hansi-font-family:Calibri;
mso-hansi-theme-font:minor-latin;}

/* Style Definitions */
table.MsoNormalTable
{mso-style-name:”Table Normal”;
mso-tstyle-rowband-size:0;
mso-tstyle-colband-size:0;
mso-style-noshow:yes;
mso-style-priority:99;
mso-style-qformat:yes;
mso-style-parent:””;
mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;
mso-para-margin-top:0cm;
mso-para-margin-right:0cm;
mso-para-margin-bottom:10.0pt;
mso-para-margin-left:0cm;
line-height:115%;
mso-pagination:widow-orphan;
font-size:11.0pt;
font-family:”Calibri”,”sans-serif”;
mso-ascii-font-family:Calibri;
mso-ascii-theme-font:minor-latin;
mso-hansi-font-family:Calibri;
mso-hansi-theme-font:minor-latin;
mso-fareast-language:EN-US;}